Hvar endar þetta?

Það er einn vinstri grænn eftir sem þorir að standa uppi með sínar skoðanir! Og hann lætur þagga niðrí sér, en segir þó í það minnsta frá aðferðafræðinni í þessari stjórn. Mér finnst fréttastofurnar hins vegar gera aðeins minna úr þessu en tilefni er til.

Ásmundur notaði nefnilega annað orðalag en fréttastofurnar, hann sagði að honum hefði verið LÁTIÐ berast til eyrna að setti hann nafn sitt á tillöguna um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu, spryngi stjórnin. Úr þessu orðalagi má jafnvel lesa að hann hefði fengið að heyra það beint frá toppunum í flokknum sínum. Hversu lágt er hægt að leggjast spyr maður bara? Ég hugsa að haldi forystumenn áfram uppteknum hætti og troða á svona á sínum þingmönnum með fulltingi Samfylkingarinnar, þá splundrast VG, eða allavegana hverfur í næstu kosningum. Enda öll baráttumál flokksins látin lönd og leið þegar flokkurinn kemst til valda.

Þetta málefni er með þvílíkum ólíkindum að maður hefur ekki heyrt annað eins. Össur Skarphéðinsson segir mjög mikilvægt að breið sátt náist um þetta ESB mál, en hann vill hinsvegar að sú sátt felist í því að fólk haldi kjafti og kyngi þessari tillögu hans og Samfylkingarinnar. Á sama tíma talar hann eins og það fólk sem er á móti ESB aðild og vinni gegn henni sé að vinna gegn hagsmunum þjóðarinnar! Það eru þvílík öfugmæli að það er næstum hlægilegt! Það er eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar að halda sig fyrir utan ESB, og fyrir nú utan vitleysuna að vera að eyða öllum þessum tíma akkúrat núna í þetta og á meðan er ekkert gert til að leysa vandamálin heima því að ESB á að leysa allan vanda.

Það á greinilega að troða okkur í ESB sama hvað það kostar. Spurning hvað þessu fólki hafi verið boðið í staðinn?


mbl.is Hefði þýtt stjórnarslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað varð um Steingrím?

Þessi spurning hlýtur hreinlega að brenna á þjóðinni sem hefur fylgst með Steingrími í stjórnarandstöðu síðastliðna tvo áratugina. Spyr gáfumannslega hvað stjórnarandstöðuformenn vilja þá gera, vilji þeir ekki samþykkja þetta.  Ekki man ég eftir því nokkurntímann að hafa heyrt frá stjórnarandstöðu-Steingrími sérstakar útlistingar á því hvað hann vildi gera við þau mál sem hann var á móti. Hann vildi einfaldlega ekki að hlutirnir yrðu gerðir með þeim hætti sem hann mótmælti, og þar við sat.

Að vísa í ábyrgð fyrri ríkisstjórnar á málinu er alveg út í hött. Vissulega er það rétt að búið sem hann Steingrímur tók við var ekki auðvelt viðureignar, en ef þetta eru lausnirnar sem hann hefur uppá að bjóða þá er hann einfaldlega í engu hæfari að takast á við hlutina en þeir sem á undan honum sátu.

Svo segist hann ekki vera að stilla neinum upp við vegg, til þess að styggja ekki þá þingmenn í hans eigin flokki sem að hafa enn vott af sjálfsvirðingu eftir. Í hinu orðinu reynir hann hinsvegar að stilla Sjálfstæðismönnum upp við vegg með því að þeir geti ekki sagt nei af því að þeir voru í stjórn þegar allt fór til fjandans.

En til hvers erum við þá með stjórnarandstöðu, ef þingmenn hennar mega ekki greiða atkvæði eftir eigin samvisku, af því að hluti hennar var einu sinni í ríkisstjórn. Þá erum við illa sett.

Steingrímur - þessi kraftmikli þingmaður sem ég ólst upp við sem besta stjórnarandstöðumanninn, hefur nú afhjúpað sig með öllu. Hann er nefnilega ekki meiri hugsjónamaður en svo, að hann er tilbúinn að skrifa uppá allt, bara til að fá að vera við völd. Skiptir engu með afleiðingarnar. Hann vill fá að vera við völd, og til þess er öllu fórnandi!

Ef svo ólíklega vill til að Steinrímur lesi þessa hugleiðingu mína, þá er ég með eina hugmynd fyrir hann, varðandi hvað á að gera frekar en að samþykkja þennan samning.

Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að gefa Bretum og Hollendingum landsbankann sem greiðslu, og láta þar við sitja. Ef þeir hóta okkur öllu illu, þá á bara segja þeim að ef þeir vilji hann ekki, fái þeir ekki neitt, og láta einfaldlega reyna á hótanirnar. Við eigum nóg af öllu. Að búa við einhverjar viðskiptaþvinganir í einhvern tíma er miklu miklu ákjósanlegra en að hneppa þjóðina í fátækt það sem eftir er. Ef samfylkingin hótar stjórnarslitum vegna þess að með þessu sé verið að styggja ESB, þá getur Steingrímur leitað til hinna flokkanna um samstarf. Því þrátt fyrir allt, þá er hann sannfærandi og öflugur leiðtogi, þegar hann er ekki bundinn Samspillingarpakkinu. Hann færi létt með að fá hina þingflokkana með sér í lið, með íslensku þjóðinni, á móti ofurvaldi ESB.

 


mbl.is Strandi Icesave, strandar allt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinir í raun!

Auðvitað eru auðlindalitlar nágrannaþjóðir ekki að setja inn ákvæði í samninginn um að það sé hægt að ganga að eignum ríkisins til að notfæra sér það. Þetta er allt í eintómri vinsemd og hamingju og hvílíkur greiði sem er verið að gera okkur með því að semja svona við okkur um þessar skuldir að það hlýtur að vera öllum ljóst. Enda hafa þessar þjóðir alla tíð frá landnámi komið fram við okkur af vinsemd og virðingu.

Eins og þegar Bretar settu á okkur hryðjuverkalögin, það var bara til að vernda okkur frá okkur sjálfum. 

Sama var uppá teningnum þegar þeir vildu ekki að við víkkuðum út landhelgina, þeir vildu bara fá að hjálpa okkur við að vinna allan þennan fisk, enda út í hött að ætla að nokkrar hræður á útkjálka veraldar myndu bara ráða við það að vinna allan þennan fisk!

Norðurlandaþjóðirnar hafa alltaf viljað okkur vel og passað uppá að við hefðum það gott, tóku meiraðsegja af okkur sjálfstæðið fljótlega til að geta passað betur uppá okkur, og voru tregir að láta það af hendi aftur, enda í meira lagi galið að við réðum við það að stjórna okkur sjálf!

Eins og allir hljóta að sjá og skilja þá eru þessir skilmálar bara uppá punt og þegar við getum ekki borgað af Icesave þá munu þeir alveg örugglega ekki ganga að okkur, ekki nema þá bara vegna þess að þeir eru miklu betur til þess fallnir að fara með þessar eignir heldur en við, enda við ósjálfbjarga með öllu.

Er þetta ekki öllum ljóst? Um hvað eru menn eiginlega að deila, ég get svarið það!


mbl.is Enginn sýnt fram á að samningurinn stofni Íslandi í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er frétt og hvað ekki?

Þetta er merkilegt spurning. Þessi niðurstaða þessarar kannanar kemst á forsíðu hér á mbl. Gott og vel.

Þess vegna finnst mér mjög merkilegt að þessi könnun skuli ekki líka vera forsíðufrétt, en hún sýnir að afgerandi meirihluti þjóðarinnar vill fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort á að fara í aðildarviðræður.

Enn merkilegra finnst mér að þessi grein skuli ekki hafa komist á forsíðu, en hún sýnir að stærri hluti þjóðarinnar telur að áður en kemur að nokkrum ESB pælingum, eigum við fyrst að einbeita okkur að því að leysa málin hér heima fyrir.

Það er líka lélegt að spurningin í þessari könnun mbl skuli ekki á einhvern hátt upplýsa þá sem ekki vita, að áður en kemur að aðildarviðræðum þarf að sækja um inngöngu í ESB. Það kemur samt svosem ekkert á óvart, því að í þeim könnunum þar sem hefur verið spurt hvort að fólk vilji að sótt verði um, er yfirleitt meirihluti á móti, og sú niðurstaða hefði klárlega ekki komist á síður ESB-moggans, og mogginn fer nú ekki að kosta könnun sem hann getur svo ekki birt þegar honum líkar ekki niðurstaðan.

Já íslensk fjölmiðlun er merkilegt fyrirbæri.


mbl.is 58 prósent fylgjandi ESB-viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvílík samningatækni

Það átti þá einfaldlega að rifta þessu samkomulagi sem ber merki um klár afglöp af hálfu fyrri stjórnvalda. Hvílíkar mannleysur sem þetta fólk er sem að geta ekki svarað fyrir þjóðina sína þegar stærri þjóðir eru að beita okkur ofbeldi.

Maður skammast sín fyrir þetta fólk, og maður skilur ekki að þetta fólk geti kallað sig Íslendinga blygðunarlaust. Við erum afkomendur fólks sem barðist fyrir sjálfstæði sínu og rétti og hafði betur, fór í landhelgisdeilu við allar stærstu viðskiptaþjóðir sínar og hafði betur.

Það er alveg ljóst að þetta fólk sem á að vera að svara fyrir okkur sem þjóð er úr öllum tengslum við uppruna sinn - og raunveruleikann!

Eina boðlega lausnin í þessari deilu er að afhenda Bretum og Hollendingum eignir Landsbankans sem greiðslu, og ekki krónu meir.

Að láta smáþjóð skrifa uppá áhættulántöku uppá ein og hálf ríkisfjárlög er bara ofbeldi sem við eigum ekki að láta sýna okkur. 


mbl.is Minnisblaðinu stöðugt veifað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá ættum við frekar að segja okkur úr EES

en að láta þetta viðgangast!

Tók saman fyrir þá sem hafa áhuga á því að velta því fyrir sér hvað þetta þýðir í raun og veru.

Eftir 7 ár miðað við 5,5% vexti verður lánið orðið 945milljarðar króna.

Vaxtagreiðslur af höfuðstólnum eru 35,75 milljarðar á ári, það eru 688 milljónir á viku, 98 milljónir á dag.

Upphaflega skuldin, 650 milljarðarnir eru 10.500kr á hvern Breta.

Hún er hinsvegar 2,1 milljón króna á hvern Íslending!

Ofbeldið sem verið er að beita okkur í þessu máli er með svo miklum ólíkindum að það er alveg fáránlegt að horfa uppá þetta. Þetta sýnir svart á hvítu að Samfylkingin er tilbúin að skrifa uppá hvað sem er til þess að koma okkur inn í ESB og að VG er tilbúið að láta allt eftir Samfylkingunni til að halda þessu ríkisstjórnarsamstarfi gangandi.

 

Maður er orðlaus


mbl.is Erfitt að skrifa undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvar er ESB til að bjarga þeim?

Ein helstu rök ESB aðildarsinna á Íslandi eru þau að ef við hefðum verið komin inn í ESB og hugsanlega með evru hefðum við aldrei lent í neinum viðlíka hremmingum. Hvar er þá ESB til að bjarga Lettum núna?

Staðreyndin er nefnilega að ESB bjargar engum og evran enn síður, gjaldmiðill Letta er festur við Evruna og það er að ganga af þeim dauðum, það vill enginn versla við þá! Þessi frétt sýnir svart á hvítu hvað krónan er að gera stórkostlega hluti fyrir okkur, hún hrundi og lækkaði laun þjóðarinnar á einu bretti gerði okkur að einu samkeppnishæfasta hagkerfi í Evrópu.

Áhugi ESB á okkur er allt annars eðlis en að þeir vilji bjarga okkur. Þeir vilja auðlindirnar okkar og aðgang að norðuríshafi og hugsanlegum auðlindum sem þar er að finna.


mbl.is Lettland sem hið nýja Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ohh svo erfitt

Ég er svo glaður í hjarta mínu. Jóhanna er svo dugleg og hún heldur manni alltaf svo vel upplýstum um hvað allir séu duglegir. Um daginn var frétt hérna þar sem hún sagði okkur öllum að það væri allt alveg ógisslega erfitt og leiðinlegt. Ég man hvað ég varð hissa, næstum því reiður og hugsaði afhverju í ósköpunum enginn hafði sagt mér þetta fyrr!?!?

En nú stígur Jóhanna fram með eldheitar upplýsingar! Þetta verður ekki bara ógisslega erfitt, heldur ógisslega ýkt geðveikt erfitt! En lausnirnar eru ekki flóknar, þetta er ekkert mál, við bara lokum flestallri almannaþjónustu og hættum öllum framkvæmdum til að láta líta út fyrir að við ætlum alltaf að hafa nægan afgang af ríkissjóði til að geta borgað útlendum kröfuhöfum til að styggja ekki ESB, og til að eiga fyrir áróðursherferðinni innanlands til að sannfæra Íslendinga um að gefa ESB sjávarútveginn og yfirráð yfir öðrum auðlindum svo við komumst þangað inn.

Og þá er málið leyst. ESB mun leysa allan okkar vanda um alla framtíð og það er svo augljóst að það er alveg ótrúlegt að það sjái það ekki allir. Enda er allt í blóma í ESB eins og allir vita. Annað en hjá okkur þar sem allt er ógisslega ýkt geðveikt erfitt og leiðinlegt.

Vá hvað ég hlakka til!


mbl.is Forsætisráðherra: Erfiðleikarnir eru meiri en búist var við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Hefur valdið mönnum áhyggjum"

Þessi setning úr þessari grein sýnir svart á hvítu að fólkið sem á að vera að taka ákvarðanirnar til að halda í okkur lífinu, hefur ekki hugmynd um hver staðan er!

Hvar hefur þetta fólk eiginlega verið? Æjá, því er auðsvarað, þau hafa verið upptekin undanfarna mánuði að rífast um Evrópusambandið bak við lokaðar dyr.

Það er með ólíkindum að fylgjast með stjórnvöldum í þessu landi, það er svona álíka að fylgjast með þeim og er að fylgjast með einhverjum sem er búinn að reyna við sama stærðfræðidæmið í of langan tíma og situr bara við skrifborðið sitt og horfir útum gluggann og gerir ekki neitt og hugsar um hvað dæmið sé erfitt.

Það er nákvæmlega það sem þessi ríkisstjórn er að gera!


mbl.is Festa gengið í 160 - 170
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvílík fjarstæða

Hvernig er hægt að fá það út að það eitt að sækja um aðild muni valda auknum stöðugleika? Í löndunum sem þegar eru í ESB er enginn stöðugleiki og horfurnar skelfilegar, og er Spánn líklega þekktasta dæmið um það. En Spánn er kominn í ESB og líka með evru og hefur þannig úr öllu því að moða sem að Jóhanna segir að við þurfum til að stuðla að stöðugleika. Nei reyndar er ég ónákvæmur þarna, Jóhanna segir að við þurfum ekki annað en að ríkistjórn okkar ákveði að fara inn í ESB til að það stuðli að stöðugleika! En þetta er þvílíkt galdraráð að ég held hreinlega að það væri heillavænlegast fyrir Spán, Ítalíu, Írland, Pólland, Eystrasaltsríkin og jafnvel Þýskaland, að segja sig úr ESB og sækja svo um aftur til að stuðla að stöðugleika í heimalöndum sínum! Að ríkisstjórnir þessara landa skuli ekki hafa hlustað á hana Jóhönnu í öllum sínum vandræðum. Já við eru heppin hér á Ísafold að hafa svona skarpskyggnt fólk við stjórnvölinn.

Það er hreint með ólíkindum að á tímum þegar ríður á aðgerðum strax til handa þegnum þessa lands, þá sé stærri flokkurinn í ríkisstjórn að leggja alla áherslu á þetta bull, sem tekur mörg ár að framkvæma, og væri í ofanálag það versta sem gæti komið fyrir Ísland sem þjóð, ef gengið yrði inn í ESB (ég þykist vita að nú muni ESB sinnar hugsa að hér vanti allan rökstuðning, og þar af leiðandi ákveða að þessi fullyrðing mín stafi af vanþekkingu, en ég bendi þeim bara á að lesa eldri færslur á þessari síðu, nenni ekki að þylja upp allar ástæðurnar enn einu sinni).

Ég bý í Þýskalandi um þessar mundir og ég lenti á spjalli við verktaka fyrir stuttu sem starfar hér. Hann var að segja mér að á þessu svæði sem ég bý, sem er í suðurhluta Þýskalands, þar séu 60% fólks sem vinni ekki fullan vinnudag. Ég varð hissa, því ég vissi þetta ekki og svaraði því til að það þætti mér ansi mikið miðað við að hér er líka hátt í 10% atvinnuleysi. Þá sagði hann mér það að ef maður reiknaði alla þá sem eru við nám vegna þess að þeir fá ekki vinnu inní þær tölur þá væri það lágmark 20%.

Við þetta vil ég bæta að þetta svæði hér á að heita eitt blómlegasta atvinnusvæði í Þýskalandi.

Viljum við virkilega taka þátt í þessum risastóra vandamálapakka sem Evrópusambandið er?
mbl.is „Þjóðin viti hvað er í boði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband